Cappuccino bollakökur à la Nigella – uppskrift

Þessar dásamlegu cappuccino bollakökur eru í miklu uppáhaldi hjá fjölskyldunni, a.m.k hjá þeim sem hafa smekk fyrir kaffi 🙂 Þær eru fullkomnar með kaffinu á rólegum sunnudögum og það skemmir ekki að það er mjög einfalt að baka þær.

Uppskriftina fékk ég í bók Nigellu sem heitir How to be a domestic goddess, þakka ykkur fyrir! Í sömu bók er að finna snilldar uppskrift að amerískum pönnukökum sem maður hrærir í blendernum en meira af þeim síðar.

Cappuccino bollakökur à la Nigella - uppskrift www.alltsaett.com Cappuccino bollakökur à la Nigella - uppskrift www.alltsaett.com Cappuccino bollakökur à la Nigella - uppskrift www.alltsaett.com

Hérna kemur svo uppskriftin:

  • 115 gr hveiti
  • 110 gr mjúkt smjör
  • 105 gr sykur
  • 2 stór egg
  • 2 tsk lyftiduft
  • 1 tsk salt
  • 1 kúffull matskeið instant kaffi (duftið fer beint í skálina)
  • 2-3 msk mjólk

Aðferð:

  • Setjið allt í hrærivélaskál og blandið vel saman.
  • Setjið 12 bollakökuform í bökunarmót og fyllið formin með deginu upp að 2/3.
  • Bakið í ofni á 200°C í 20 mín.
  • Takið kökurnar úr ofninum og leyfið þeim að hvíla í forminu í ca. 5 mín.
  • Færið þá kökurnar yfir á kæligrind og látið þær bíða þar til þær hafa kólnað alveg.

Kremið:

Ég hef þurft að aðlaga uppskrifina hennar Nigellu að kreminu því þegar ég fylgi henni þá verður kremið allt of þunnt. En hérna er mín útgáfa:

  • 75 gr hvítt súkkulaði
  • 25 gr smjör
  • 50 gr sýrður rjómi eða Ab mjólk
  • 400 gr flórsykur.

Aðferð:

  • Setjið súkkulaði og smjör í skál og bræðið saman í örbylgjuofni. Passið vel að brenna ekki blönduna. Látið súkkulaðið standa í smá stund svo það kólni aðeins og hellið því svo í hrærivélaskál.
  • Þá er bara að blanda sýrða/Ab mjólkinni saman við súkkulaðið og byrja að hræra.
  • Að lokum er flórsykurinn settur út í og kremið þeytt þar til það er orðið létt og ljóst.
  • Ath! Ef kremið er of þunnt þá bætið þið bara flórsykri út í það þar til réttu áferðinni hefur verið náð. Eins ef ykkur finnst kremið vera of þykkt þá má bæta út í það sýrðum eða ab mjólk.

Sprautið eða smyrjið kreminu á bollakökurnar og sáldrið örlitlu kakói yfir. Voila! Cappuccino bollakökurnar eru tilbúnar 🙂

Eigið dásamlegan sunnudag.

Share

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *