Matcha bollakökur með Matcha smjörkremi – uppskrift

Fyrir nokkrum mánuðum sá ég svo fallega köku á netinu. Hún var skreytt með Matcha smjörkremi sem gaf henni yndislegan grænan (já – ég veit) náttúrulegan lit. Engin þörf á að nota matarlit 😀 Þarna kviknaði áhugi minn á því að prófa að nota Matcha te í bakstur og loooooksins lét ég verða að því eftir að ég rakst á Matcha tea for cooking á Te & Kaffi.Matcha bollakökur - Allt sætt

Mörg ykkar þekka líklega þetta ofurte en sagt er að það innihaldi 10-15 sinnum meira af næringarefnum en annað grænt te og svo er það stútfullt af andoxunarefnum (sjá hérna). Hérna getið þið lesið ykkur meira til um Matcha te.Matcha bollakökur - Allt sætt Matcha bollakökur - Allt sætt

Hérna kemur svo uppskriftin að bollakökunum og kreminu: 

380 gr sykur
320 gr hveiti
2 msk Matcha tea for cooking
1 1/2 tsk lyftiduft
1 1/2 tsk matarsódi
1 tsk salt
2 egg
250 ml hrein súrmjólk eða AB mjólk
1 msk vanilludropar
120 ml bragðlítil olía t.d. Wesson grænmetisolía
60 ml heitt vatn (soðið)

Aðferð:
Hitið ofninn í 160°C. Raðið bollakökuformum í bollakökupönnur.

  • Blandið öllum þurrefnunum saman í stórri skál.
  • Blandið eggjum, súrmjólk, vanilludropum og olíu saman í annarri skál.
  • Hellið eggjablöndunni yfir þurrefnin og hrærið öllu saman. Hellið þá sjóðandi heitu vatninu út í deigið og blandið vel.
  • Fyllið bollakökuformin 2/3 full af deiginu. Ég nota ísskeiðar til að fylla í bollakökuformin mín því þá næ ég að setja jafn mikið í öll formin 😉 Hérna sjáið þið dæmi um svona ísskeið.
  • Bakið kökurnar í 18-20 mínútur.
  • Látið þær kólna alveg áður en þið setjið kremið á þær.

Matcha smjörkrem:

  • 250 gr mjúkt smjör – við stofuhita
  • 500 gr flórsykur
  • 2 tsk Matcha tea for cooking
  • 1 tsk vanilludropar
  • 1/4 tsk salt

Aðferð:
Setjið öll hráefnin saman í hrærivélaskál og hrærið kremið saman í 3-5 mínútur eða þar til það er orðið mjög létt og öll hráefnin hafa blandast vel saman.

Njótið vel!

Matcha bollakökur - Allt sætt

Share

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *